![]() |
||||||||||||||||||||||||
|
Örsmátt um PálPáll Guðmundsson er fæddur árið 1959 á Húsafelli í Borgarfirði þar sem hann ólst upp. Hann er eitt fjögurra barna Guðmundar Pálssonar bónda á Húsafelli, sem nú er látinn og Ástríðar Þorsteinsdóttur húsfreyju. Eftir grunnskólanám á Kleppjárnsreykjum stundaði Páll nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árin 1977-1981 og árið 1985-1986 við Listaháskólann í Köln í Vestur-Þýskalandi en þar var lærifaðir hans prófessor Burgeff. Eftir að hann lauk námi hefur hann óskiptur helgað sig ævistarfinu; því að vera listamaður og náttúrubarn. Lengst af dvelur hann á Húsafelli, en hefur þó ferðast víða og unnið ýmis sérverkefni fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög hér heima og erlendis. Hann hefur haldið fjölda sýninga á verkum sínum; bæði einkasýningar og samsýningar. Sem myndlistarmaður hefur hann annars vegar málað með olíu- og vatnslitum, unnið bergþrykk, svellþrykk og fleira í þeim dúr. Hinsvegar hefur hann unnið mikið með grjót; höggmyndir, skúlptúra og nú síðustu misseri hefur hann lagt mikla vinnu í gerð steinhörpu (sjá mynd hér að ofan) sem formlega var vígð við opnun sýningar hans í Ásmundarsafni fyrr á þessu ári þar sem frumflutt var verkið "Steinabragur" fyrir steinhörpu eftir Áskel Másson tónskáld. Undanfarin ár hefur Páll verið náinn samstarfsmaður Thors Vilhjálmssonar rithöfundar. Saman hafa þeir skapað verk þar sem hæfileikar þeirra beggja njóta sín í ystu æsar; Páll teiknar myndir sem Thor yrkir við. Listamaðurinn Páll Guðmundsson hefur þannig, þrátt fyrir stutta ævi, komið víða við og eftir hann liggur ótölulegur fjöldi verka sem ber hróður hans út fyrir landssteinana, ekki síður en hér heima. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga, meðal annars menningarverðlaun DV og nú síðast sem fyrsti formlegi héraðslistamaður Borgfirðinga í júní 2001. Hans stærsta viðurkenning fyrir starf sitt er þó tvímælalaust sú mikla eftirspurn sem er eftir verkum hans og vinnu. (Ljósmynd hér að ofan: Savör Gissurardóttir)
|
|||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||